Helgu Blogg

Velkomme!

22.11.2008 15:58:47 / Helga

Varúð! Þunglyndis blogg!

 

Ég sit hér í vinnunni og það er ekkert að gera. Ég er búin að segja upp og er ekki viss hvort ég fari út til Florida núna um jólin því við höfum ekki fengið neitt comment á íbúðina okkar sem við erum að reyna að legja og Stefán fær kanski samning úti og þeir vilja fá hann í viðtal þegar við förum til FL ...þannig að ef hann fær svo samninginn þá þarf hann að koma aftur til ísl. Til þess að fá stimpil í vegabréfið! Ég náði ekki TOEFL  sem var ógeðslega erfitt, shitt sko..ég les alltof hægt fyrir þetta rugl þannig ég er búin að fara í lesblindugreiningu og þarf bara að taka lesblindupróf, ég veit bara ekkert hvernig ég sæki um það. Þannig að það veltur á því hvor Stebbi fái samning og hvort við getum leigt út íbúðina, hvort við förum núna um jólin eða í vor.

Það skiptir eginlega engu máli fyrir mig hvort við verðim næstu önn hér eða úti því ég er bara að fara að æfa mig í ensku og fara á hraðlestrarnámskeið þangað til ég fer í FSU í sumar! En mig langar að fara út sem fyrst að sjálfsögðu, við getum bara ekki tekið endalaus lán fyrir að gera bara eitthvað.

Ég veit bara ekki neitt eins og er. Ég var svo að komast að því að ég get fengið grænakortið í gegnum pabba eftir 8 ár. Þannig að það tekur því ekkert að vera að sækja um það L Ég er ekki að sjá að við erum að fara út núna eða kanski bara ever! Ég er orðin svo þreytt á þessu endalausa veseni með bandaríkin. Ég ætti kanski að reyna að sækja um nám í Danmörku eða e-ð. Það er bara allt búið að fara í fokk og svo bætist við kreppa þannig að námslánin geta ekki koverað námið :S Ég get bara ekki neitt! Ég er með svo mikinn athyglisbrest að ég man ekkert hvað ég á eftir að gera. Og Shitt ég var líka að fatta það að ef ég á eftir að taka e-ð uppí FSU þá kemst ég ekki þangað í sumar og þarf að bíða í annað ár!!!

Ég er að spá í að hætta að skrifa því þið drepist bara af bömmer ef ég held áfram.


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 22:54:31 / Helga

London baby!

Ég er búin að vera í miklu stressi undanfarið, við erum að plana námsferð il Forida eins og flestir vita. Við erum búin að lenda í öllu sem hægt er að lenda í, í þessu ferli. Gátum ekki sóttum Toefl á netinu því síðan þeirra var í e-u rugli og misstum af því á Íslandi og þurftum að taka það í London, gátum heldur ekki sótt um WES (sem þýðir áfanganna yfir á enska kerfið) útaf sama veseni og svo þýðir Iðnskólinn í Hafnarfirði ekki áfangalýsingarnar yfir á enku þannig að ég þurfti á gera það sjálf....and so on ad so on... Vi Stefán fórum til London 8. okt. – 12 okt. Til að taka TOEFL enskuprófið... ég var rosa stressuð fyrir það, ég er neblast með smá leslindu en það er hægt að taka lesblindupróf en það er geðveikt mikið vesen. Ég hefði þurft að fara aftur í greiningu og sækja um lesblinuprófið og fylla út einhver form og rugl...þann að ég ákvað að taka áhættuna og læra bara vel! Svo þegar við tókum prófið var það ógeðslga erfit. Það var líka brjálaður hiti inní stofunni og allir í kremju...mjög óþæginlegt :S Og útaf hitanum og uppþornun og þungu lofti fékk ég hausverk og svima, úff hvað þetta var ógeðslegt. Þetta tók 5 klukkutíma!!! Það er semsagt búið að lengja prófið enn meira! Vona bara að við náum þessu. En annars er þetta er allt að smella saman held ég. Þá eigum við bara eftir að fara í Visa viðtal, sækja um námslán, legja út íbúðina, selja bílinn, finna íbúð í Tallahassee, pakka, flytja.

En svo ég tala um eitthvað skemmtilegt þá hittum við Arndísi úti, það var rosa gaman að hitta hana :D Við kíktum á pöbbinn eftir prófið og svo Fór hún með okkur í smá túr um London það var æði.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 18:11:43 / Helga

:P

Jæja eur ekki komnir 4 mánuðir...hehe..:S

Ég er búin að vera mjög upptekin og þreytt..er að vinna rosa mikið og er akkurat í vinnuni núna, mér finnst að ég eigi mér ekkert líf:S En ég fékk smá breik núna í lok mai! Við Stefán fórum  með vinnunni minni á árshátíð til danmörk og fékk ég frítt flug og  gistingu og við þurftum bara að borga flugið fyrir Stefán. Árshátíðin var rosalega flott, Það var svona “rauði dregillinn” þema og þettaersko stærstaog flottasta árshátíð sem ég hef séð. Það var allt í risastórum ljósakrónum og svaka bíómynda skiltum og þyrla sem kom út úr veggnum, risa mynd af óskarnum og stigi fyrir aftan sviðið þar sem Elvis Presly stóð með gítarinn sinn umlukinn stjörnuhimniog stórborg...Var þetta too mutch? .. En maturinn var æði og “ABBA” spilaði og það var tjúttað framm á nótt.Við framlengdum ferðinni og heimsóttum Halldóru systir, fyrst við vorum nú í DK. Við fengum að vera hjá henni í Odense í flottu íbúðinni hennar. Við kíktum í bæjinn og versluðum smá, fórum í dýragarðinn, og í æventyrhaven sem er stór garður með læk..rosa flottur...og þar lágum við í sól og sælu það þangað til við heyrðum einhver ansk#$” læti í einhverjum gaurum. Við litum fyrir aftan okkur og þá voru nokkrir menn um þrítugt held ég , blindfullir og einn var allsnakinn og stökk útí lækinn sem er ógeðslega skítugur og kom svo uppá bakkann og fór að dilla typpinu sínu framan í hina og var alveg sama hver var að horfa! Fólk flissaði bara og hélt svo áfram að sóla sig. Það var geðveikt gaman að hitta Halldóru sem er orðin svaka sjálfstæð og flutti EIN ÚT TIL DK! Go Halldóra :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 18:52:19 / Helga

Brandy the brunette!

Jæja segi ég alltaf...ég er búin að vera soldið löt í blogginu udanfarna......4......mánuði..:lol:

Það sem hefur verið í gangi hjá mér er: að ég er hætt í Egg eins og flestir vita, byrjuð að vinna í Kvik sem er verslun með innréttingar og gengu bara mjög vel þar...

Ég er komin með brúnt hár og fer mér bara vel þó ég segji sjálf frá.

Við Stefán eum að fara fá okkur nýjann ísskáp og fataskáp í svefnherbergið.

Við magga, Rakel og Elma fórum á djammið síðustu helgi! JÁ ég var að djamma ég er ekki svo gömul! Við byrjuðum heima hjá mér heltum alveg í okkur, í góðum gír og fórum svo niðrí bæ á Vegamót og dönsuðum og tjúttuðum! Ég fékk kúlu á sköflunginn og var klipin ógeðslega fast í rassinn, en þannig er það bara þegar maður fer með ákveðnum einstakling á djammið ;) svo ákvað ég að fara heim. Daginn eftir frétti ég af mikilli dramatík og kjánalátum sem höfðu átt sér stað í bænum og að magga ætli að taka sér pásu í djamminu hehe.

Bæ í bili!

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 16:09:50 / Helga

Sælt veri fólkið!

Jæja þá er sko kominn tími til að blogga á ný. Það er sko búið að vera brjálað að gera hjá okkur Stebba! Ég að vinna í nyju vinnunni minni Egg, og verð að standa mig vel og svona. Stefán í skólanum á fullu að smíða gull, og svo erum við búin að vera að helluleggja í 3 vikur (með pásum) hjá mömmu og Svenna sem er loksins búið og er klárlega flottasta bílastæði/göngustígur í hverfinu, nei,nei í heiminum! Þannig voru dagarnir okkar í næstum 3 vikur, Vakna – vinna – æfing – helluleggja – heim að sofa!

Við erum búin að vera soldið þreytt og endar með því að ég er komin með einhveja leiðinda flensu sem er slappleiki, beinverkir og brjálaður hausverkur L Erviði. En núna hef ég meiri tíma fyrir ykkur vinir og vandamenn, svo við hittumst nú fljótlega.

 

Svo er Eygló frænka er bara að fara að eiga núna bráðlega er sett 25 sept. minnir mig, og þá ætlum við famelían að fara norður og heimsækja litlu fjölskylduna! Minns hlakkar ekkert smá til að sjá litla krílið.

 

Og síðast en ekki síst þá langar mig að óska henni Höllu vinkonu innilegar hamingju óskir með afmælið í dag!!

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 16:32:05 / Helga

Tenerife baby!

Við Stefán ákváðum einn föstudaginn að kíkja á ferðaskrifstofur og tékka hvort þau væru með einhverjar hoppferðir fyrir okkur, það endaði með því að við komum út með flugmia fyrir tvo til Tenerife næsta þriðjudag! Já við semsagt skelltum okkur þangað bara tvo en við skemmtum okkur konunglega! Djömmuðum einsog vitlisingar, borðuðum á fínum veitingastöðum og sleiktum sólina á ströndinni :haha:

Lífið var sko aldelis ljúft. Fórum að kafa og í verslunarferð til borgarinnar.

Hér eru nokkrar myndir.

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 19:05:02 / Helga

Útilega!!

Við Magga, Rakel Arna og Nói (hundurinn hennar), Elma og Anna Lilja fórum í útilegu um helgina! Geggjað stuð við tjölduðum á Svínafelli á föstudags kvöldi kl. 23:30 og komum okkur vel fyrir. Á laugardaginn vaknaði ég við lætin í Nóa sem að var allf að hlaupa utan í tjaldið.... við skriðum á fætur og fórum að skoða svartafoss, fínn göngutúr þangað. Það var glampandi sól en smá rok en við létum það ekki eyðileggja fyrir okkur. Eftir það fórum við á jökulsárlón eins og algjörir túristar svo sáum við sel á leiðinni á tjaldsvæðið. Fórum svo í sund og grilluðum og stelpurnar drukku rauðvín og hvítvín en ég var búin að vera með magaflensu svo ég fékk mér bara smá sopa. Anna endaði dauð inní tjaldi kl. 23!! Og hinar farnar að finna á sér híhí. Sunnudagsmorgun var vaknað snemma í glæsilegt veður! Það var glampandi sól og logn og góður hiti. Þar lágum við í sólbaði heillegi og vildum varla fara heim. Við lögðum af slað og stoppuðum á e-u eldgömlu býli og við Skógarfoss og tókum myndir. Um kvöldið þegar við komum heim vorum við allar eldrauðar í framan af sólbruna og ég er enn að bera á mig aloa vera!

P.S. komið nýtt myndalbúm er búin að setja nokkar myndir...reyni að vera dugleg að setja fleiri.

 

 

 

Magga

 

Á leið að Svartafossi

Jökulsárlón

 

í sveitinni

 

Skógarfoss

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 17:12:14 / Helga

Do you want the good news or the bad news?

 

Ég er semsagt ekki að fara til Akureyrar í haust...ég er semsagt búin með allt sem þau eru að kenna þar þannig að það er pæling að fara til FLORIDA!! Já og læra bara arkitekt þar með Möggu og Fannari og við finnum þá gullsmíðanám fyrir Stefán!

Já,já þið sem þekkið mig best eru löngu búin a heyra allt um það en þetta eru sko líka upplýsingar fyrir alla aðdáendur mína ;)

Já lífið er gott aftur! Erum að fara í sumarfrí 11 júlí en við hööfum ekki hugmynd um hvað við eigum að gera við það svona fyrst maður er að spara fyrir “FLOIDA BABY” (High five)

 

Ég er núna búin að vera með e-a magaflensu eða sýkingu og er búin að vera drepast í maganum og ég fór til læknis og fékk lyf til að stilla magann en það hefur ekki virkað nógu vel þannig að ég hringdi í lækninn og sagði honum frá því og hann sagði mér að tvöfalda töfluskamtinn og ef það lagast ekki á sunnudaginn þá á ég að fara á gjörgæslu!! O,óó....plís lagastu :S Þannig að það kemur í ljós þá. Ég held samt að ég sé að batna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 09:46:55 / Helga

Hæ.

 

Okey ég er ekki búin að blogga heil-lengi :lol: en það er bara svo mikið að gera allaf hjá mér, samt hef ég ekkert mikið að segja..humm hvað hef ég nú eginlega verið að gera?

Það voru páskar, allt of stutt frí og já, nú er ég sko orðin gömul, 24 ára ... I know!! Hvert flaug tíminn eiginlega? Maður er orðin svo stór að maður er farin að skrá sig á biðlista á elliheimili L Stebbi líka orðinn eldgamall 23 ára!

Eins og þið flest vitið þá fékk Stefán 2 gullfiska í afmælisgjöf frá vinum sínum Árna og Ófeigi og þeir voru búnir að skíra þá Árni og Ófeigur! Greyin voru í blómavasa og ég gat bara ekki horft á þá synda í litla hringi í litlum vasa:(, þannig að við fórum til Ófeigs sem er að vinna í dýrabúð og fengum rosa flotann díl á 60 lítra fiskabúri og fengum okku nokkra fiska í viðbót.

 

Magga og Fannar eru komin heim...jibbííí...og það er æðislegt að fá þau aftur :haha: Þetta á eftir að verða frábært sumar og “sumarið er komið.. soná það að vera...úúú...

 

En nú hef ég smá leiðinlegar fréttir að færa... því að ég fékk ekki inngöngu í Listaháskólann:cry: grát grát... Bjóst nú samt alveg við þessu.. það voru ca. 75 manns sem sóttu um í fyrra og í ár sóttu 240 MANNS um!! Og örfáir komast inn! Ég verð víst bara að fara til Akureyrar í nám og vera í ár þar uhuhu.... Ætla að sækja um í myndlistaskólanum þar og undirbúa mig enn betur. En þangað verð ég að fara ein í burtu frá Stebba, vinum mínum, fjölskildu og STEBBA :cry: Ég veit... þetta er ógeðslega sorglegt!

 

En ég ætla að hætta núna og fara að grenja, bæjó.


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 16:55:35 / Helga

Í leikskóla er gaman...

Ég veit að öskudagurinn er löngu liðinn en mig langar aðeins að segja ykkur hvað það var gaman hjá mér þann dag. Ég fékk að klæðast grímubúning því ég er að vinna á leikskóla, og var kisa. Það va æðislegt að koma í leikskólann og sjá allar þessar dúllur í alskonar búningum og það var ball og það var dansað og við fengum popp og djús....æðislegt! En svo þið getið séð krúttin þá set ég hér myndir! Þið getið líka kíkt á síðu leikskólans : www.regnbogi.is og ég er á gulu deildinni :D

         

  

    

   

Svo átti Stefán afmæli á mánudaginn og ég er svo æðisleg kærasta að ég hélt óvænt partý fyrir sæta og bauð bestu vinum hans heim til okkar og svo fór ég og leyfði þein að vera í friði og ég var að sjálfsögðu búin að kaupa bjór og jack daniels og snakko.fl. Þetta var víst frábært partý og svo var farið niðrí bæ. Svo á mánudaginn  pantaði ég nudd fyrir kallinn og bauð honum út að borða um kvöldið. Ekki slæmt ha! Enda var hann mjög ánægður með þetta allt saman.


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 22:24:07 / Helga

Ye, ye.

 

Nei Magga mín ég er ekki farin í verkfall. Ég er ekki búin að vera nógu dugleg að blogga og vil biðjast afsökunar á því.

En svo ég byrji nú á blogginu... 

Það er ekkert mikið að frétta af okkur, bara búin að vera að vinna og vera húsmóðir! Það er alveg ótrúlegt hvað er mikið a gera hérna heima, mér finnst ég alltaf vera að taka til og þrífa en þá er bara fínt í svona tvo daga og þá þarf að fara að þrífa aftur og setja í þvottavélar. Svo á ég ennþá eftir að taka niður jólaseríuna í glugganum, þarf að fara gera það. Það eru bara endalaus verkefni! En lífið er nú samt mjög ljúft hjá okkur Stebba, já love is in the air!

 

Ég var að hætta í Dressmann! Já yfirmaðurinn sagði að ég væri ekki nógu dugleg að brjóta saman fötin og ég brálaðist og hætti á staðnum og rauk út!!

......Nei bara að grínast hehehe....  Halla féll kylliflöt fyrir þessari lygi hahaha! Að hún af öllum skyldi hafa trúað þessu uppá mig! En ég hætti nú samt en það var nú bara útaf því að ég er að fara að sækja um í listaháskólanum og þarf að vinna á fullu í möppugerð og ég er nú líka í 100% vinnu í leikskólanum. Ef ég kemst ekki inn í Lhí þá er ég að pæla í að fara í undirbúningsnám í myndlistaskólanum á Akureyri!! Já ég veit! Það verður erfitt! Og það er eins árs nám. Ætli það verði þá ekki alltaf partí hjá Stebba ef að ég verð fyrir norðan :S

 

Nú eru allir þessir ástardagar á enda, æ þið vitið, bónda, konu og valentínusardagurinn. Ég gerði góðann morgunmat bæði á bóndadaginn og valentínusard. Og dekraði við kallinn og eldaði flotta kvödverði. Og ég fékk blómvendi og dekur og friends seríu. Rosa gaman og rómó.

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 19:20:55 / Helga

;)

Here are my celebrity look-alikes 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 02:21:08 / Helga

Lallala...

Jæja gott fólk þá er stóra stundin runnin upp! Ég að blogga....dam, dam, dam, daamm...  Okey hvað er að frétta a mér?  Jah,  hvert var ég komin...óóó ..humm já síðst þegar ég bloggaði var 8 ágúst ....hehe :lol: don´t hate me :lol:

Allavgeana síðan þá, hef ég byrjað að vina á leikskóla sem heitir Regnboginn og er frábær leikskóli með yndislegustu börnum...ó já hvern einasta morgun þegar ég kem fær maður þessar frábæru mótökur, það eru knúsar, kossar og stundum e-ð blautt með því en það er alltí lagi því þá veit ég að þau elska mig..híhí! Og í hvert skiptið er það “góa dæin henga” Rúsínur...ég veit :haha: Ég er á gulu deildinni sem er yngsta deildin.

 

Hér eru litlu míslurnar mínar!

 

Hvað meira... bara vinna og vinna í leikskólanum og Dressmann eins og brálæðingur í jólabrjálæðinu og hafðí engan tíma til að þrífa eða gera neitt, en þetta reddaðist, ég náði þó að skreyta jólatréð:haha: og pakka inn gjöfunum á síðustu stundu á aðfangadag eftir vinnu úff!

Jólin voru frabær og við Stefán vorum heima hjá ömmu og afa og verðum hjá fjölskildu hans á áramótunum og svo öfugt á næsta ári. Við fengum SVO mikið af gjöfum að mér líður eins og ég sé ofdekruð. Við fengum myndavél, borvél, sög, fullt af dóti í búið, ilmvatn, og fleira og fleira og síðast en ekki síst þá gaf Stefán mér gsm- síma. Og svo ætlum við að kaupa okkur e-ð fínt í búið í útsölunum!

Takk allir fyrir mig og gleðileg jól.

Nú er Magga og Fannar komin heim, og ég ætla að reyna að fá eins mikinn tíma með þeim í þennan stutta tíma sem þau verða hér ....sniff, sniff.

 

Jæja þetta er ágætt...þið fáið næst fréttir af mér ertir 4 mánuði!  Djók :lol: ég reyni að vera duglegri ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 16:21:49 / Helga

Hæ, hæ!

Ég var að horfa á friends um daginn (sem eru by the way bestu þættir í heimi) og í einum þættinum kom Chandler með eitt gott point um Andres önd... og það var að Andres önd er bara klæddur peysu en er aldrei í neinum buxum! og þegar hann kemur úr baði þá setur hann handklæði á mittið á sér! hvað er pointið ef hann er hvor sem er ber að neðan?

Hvað segið þið um málið?


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 16:45:53 / Helga

Voff!

Ég sit í vinnunni og læt mér leiðast. Það er lítið að gera og enginn nennir að tala við mig á msn. Þannig að ég er bara að skoða netið og blogga. Einn og hálfur tími eftir af vinnudeginum og þá erum við að fara uppí sumarbústað til ömmu og afa...afi á afmæli og er að bjóða í ammælismat.

En eins og ég var að segja þá er ég að skoða hunda síður á netinu því við Stefán ætlum að fá okkur hund einhverntíman og sá ég sætustu mynd í geimi....langaði bara að sýna ykkur hana!

 

Æææjj..rúsínur...

 

Ég segi bara "voff" í bili...


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti